Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Henný Björk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag og fræddi okkur um stafræna heilbrigðistækni en hún hefur nýtt sinn hjúkrunarfræðigrunn og er að vinna með fyrirtækinu Helix með stafræna lausn í smáforritinu Iðunni sem Helix er að þróa og getur sparað hjúkrunarfræðingum töluverðan tíma svo þeir hafi meiri tíma að til að sinna sjúklingum. Semsagt vísir að ákveðinni byltingu í störfum hjúkrunarfræðinga sem í dag eyða stórum hluta vinnunnar í tímafreka skriffinnsku. Henný Björk sagði okkur meira frá þessu í dag. Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Á á laugardaginn mun Tómas Grétar Gunnarsson, fuglafræðingur á Laugarvatni og forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, leiða gesti um Skálholtslandið og fræða þá um þá fugla sem þar finnast. Tómas sagði okkur frá fuglum á þessu svæði og göngunni í dag. Jónatan Garðarsson kom aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá leik- og söngkonunni Soffíu Karlsdóttur. Hún varð þekkt í tengslum við revíu- og kabarettsýningar, svo ekki sé minnst á nokkur lög sem urðu gríðarlega vinsæl um miðja síðustu öld, til dæmis Bílavísur og Það er draumur að vera með dáta. Soffía leit sjálf ekki á sig sem söngkonu, en eins og Jónatan sagði okkur frá í dag þá eru hún engu að síður meðal allra fyrstu dægurlagasöngkvenna Íslands. Tónlist í þættinum í dag: Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Segðu mér satt / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson) Það er draumur að vera með dáta / Soffía Karlsdóttir (Edward Brink, texti Bjarni Guðmundsson) Bílavísur / Soffía Karlsdóttir (Holmes, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Stafræn heilbrigðistækni, fuglaganga og Jónatan um Soffíu KarlsdótturHlustað

02. maí 2024