Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Við lok starfsferils er mikilvægt að undirbúa sig fyrir þær breytingar sem verða eftir að störfum lýkur. Með aukinni þekkingu er fengin betri yfirsýn og auðveldara verður að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri. Við fengum Lilju Lind Pálsdóttur, viðskipta- og hagfræðing, til þess að fara aðeins yfir þetta með okkur í dag, en hún þekkir vel til lífeyrismála og hefur verið með ráðgjöf og fræðslu til fjölda ára. Hún heldur námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands, Á tímamótum - fjármál við starfslok og Lilja fór betur yfir þessi mikilvægu mál með okkur í dag. Mannlegi þátturinn er tíu ára um þessar mundir og við höfum verið að rifja upp efni frá fyrstu dögum þáttarins. Til dæmis viðtal við Ara Ólafsson eðlisfræðing sem komst í hann krappan, ásamt fjórum vinum sínum, allt saman ungir drengir, þegar þeir fóru í ævintýralegan róður á Kópavoginum. Þeir voru aldrinum 12-14 ára og höfðu nokkrum sinnum farið í lystisiglingar á voginum, en í þetta skiptið reið alda yfir og bátnum hvolfdi. Við rifjuðum upp atburðinn með einum þessara drengja, Ara Ólafssyni eðlisfræðingi. Uppskeruhátíðin Haustgildi, menning er matarkista, verður haldin í fjórða sinn á Stokkseyri um næstu helgi. Á sama tíma verður haldið upp tíu ára afmæli Bókabæjanna austanfjalls. Haustgildi er uppskeruhátíð í víðri merkingu sem fagnar hausti og uppskeru með það að markmiði að tvinna saman menningarviðburði og markað í fjölskylduvæna upplifun við ströndina. Við ræddum í dag við Pétur Má Guðmundsson, einn af aðstandendum hátíðarinnar. Tónlist í þættinum: Afi / Björk Guðmundsdóttir og Björgvin Gíslason (Björgvin Gíslason, texti Bjartmar Guðlaugsson) Hún hring minn ber / Vilhjálmur Vilhjálmsson og hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar (erlent lag, texti Baldur Pálmason) Capri Catarina / Haukur Morthens og hljómsveit Jörn Grauengard (Jón Jónsson, texti Davíð Stefánsson) Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fjármál við starfslok, drengir í sjávarháska og Haustgildi á StokkseyriHlustað

05. sep 2024