Með lífið í lúkunum

Með lífið í lúkunum

Í heilsumola dagsins fer Erla yfir hvernig við setjum okkur góð markmið og spjallar við Stein Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um markmiðasetningu og hvernig markmiðasetning getur nýst bæði í íþróttum og í lífinu almennt. Af hverju getur verið gott að setja sér markmið?Til þess að vita hvert þú vilt stefna, þ.e. hvaða þætti heilsunnar þú vilt bæta er nauðsynlegt að setja sér markmið. Heilsutengd markmið geta verið allt sem hefur góð áhrif á þína heilsu. Svefn, hreyfing, mataræði, samvera, starfsframi eða annað.Settu þér markmið sem vekja upp góðar tilfinningar og þér þykja skemmtileg.Markmiðin þurfa að vera SMART, þ.e. Skýr, Mælanleg, Aðgerðaráætlun, Raunhæf, Tímasett (farið er stuttlega yfir hvert atriði í þættinum)Það er líka oft þannig að innri hvatningin kemur þegar við erum búin setja okkur markmið og byrjuð að vinna að þeim. Ef við setjum okkur aldrei markmið er líklegra að við séum föst í sömu sporunum. Markmið eru líka góð leið til þess að halda sér við efnið og þó að markmið náist ekki þá erum við alltaf komin lengra en áður en við settum okkur markmiðið.Sendu HeilsuErlu skilaboðErt þú ekki örugglega að fylgja HeilsuErlu á Instagram?

Heilsumoli. Hvers vegna getur verið gott að setja sér markmið?Hlustað

07. jan 2024