Sjónvarpslausir fimmtudagar

Sjónvarpslausir fimmtudagar

SLF verðlaun ársins 2023. Sigmundur Davíð og Bergþór fara yfir árið 2023 og veita hin árlegu SLF verðlaun. Af handahófi: Framkvæmdamenn ársins: Ráðherrar Framsóknarflokksins. Handbók ársins: Handbók fyrir kennara um klámkennslu. Vonbrigði ársins: Útgjaldavöxtur ríkissjóðs undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Frekasti maður ársins: Þorsteinn V. Einarsson – fyrir að etja 20 þúsund fylgjendum sínum til að áreita starfsmann Bónuss. Salernisferð ársins…? Landvinningamenn ársins: Bílastæðasjóður. Auka-Dagur ársins: Einar Þorsteinsson. Misskilningur ársins: Orð Bjarna Benediktssonar orsaka breytingar á högum Margrétar Danadrottningar. Og ótal fleiri verðlaun sem menn annað hvort elska að hljóta, eða bara alls ekki. Takk fyrir samfylgdina á liðnu ári og gleðilegt nýtt ár!

#62 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 7.1.2024.Hlustað

08. jan 2024