Pant vera blár!

Pant vera blár!

Kæra Dagbók,Í dag er ég mjög spenntur, alveg súper dúper ÚBER spenntur! Ég er nefnilega að fara til Þýskaland á spilaráðstefnu. Ég var ekki alveg viss hvort ég ætlaði að fara enn síðan var bara svo SJÚKLEGA gaman síðast að ég ákvað að drífa mig.Ég er að spá að vera smá flippaður og fá mér Baileys út í kaffibollan minn hérna upp á velli í tilefni dagsins og aldrei að vita nema taki eitt Encore spil við strákana í vélinni á eftir. Djöfull verður þetta skemmtilegt! Bah strákarnir eru að koma, greinilega búnir í ELKO. Ég verð að loka þessari stuttu dagbókafærslu þótt mig langi að skrifa meira... Lofa að skrifa niður eftir hvern dag á Spiel Essen :)Styrmir Spennti

67. Ferðadagbók Styrmis (Essen 2023)Hlustað

22. okt 2023