Sendu okkur skilaboð!Nú hefur Pyngjan lagt ársreikninga til hliðar í bili en alla þriðjudaga í sumar munum við fá til okkar góða gesti og ræða rekstur og viðskipti. Það var enginn betur til þess fallinn en Gústi bakari að hefja þessa nýju vegferð með okkur en í þættinum fer hann yfir ferilinn sem rekstrarmaður en hann er upphafsmaðurinn á bakvið Brauð og co., Kastrup og BakaBaka. Stórskemmtilegt viðtal við einstaklega skemmtilegan mann.