Radio J'a­dora

Radio J'a­dora

Hún er superstjarna og lék á sviði í Las Vegas. Hún er leikkona, söngkona, listakona, fyrrum Solla Stirða,  mikið legend, LA lady og stórvinkona mín. Unnur Eggerts er viðmælandi minn í Radio J’adora þessa vikuna. Við spjölluðum um allt á milli himins og jarðar, meðal annars um leiklistarnámið í New York, hvernig það er að leggja land undir fót og fara ung út í hinn stóra heim, hvað það er mikilvægt að vera alltaf með sjálfri sér í liði og óþæginlegar áheyrnaprufur þar sem karlmenn reyna að lítillækka konur. Við ræddum einnig um andlega heilsu, mikilvægi núvitundar og sjálfsræktar, samfélagsmiðla, innblástur og að yfirstíga hræðslu. Tune in! Xoxo DJ Dóra Júlía

Unnur EggertsHlustað

18. júl 2019