Í þessum þætti af Ræðum það... er rætt við Lovísu Önnu Finnbjörnsdóttur, sviðsstjóra fjármálaráðgjafar hjá Deloitte á Íslandi. Hún hefur unnið sig upp hjá Deloitte á síðustu 10 árum en ætlaði aldrei að vera þar svo lengi en vegna þess hve spennandi verkefnin eru þá hefur hún orðið heltekin af ráðgjöf. Hún hefur unnið í mörgum af áhugaverðustu kaupum og sölum á Íslandi ásamt því að veita stærstu fyrirtækjum á Íslandi fjármálaráðgjöf. Í viðtalinu ræðum við ráðgjöf og hvernig verkefnum hún hefur verið í undanfarin ár.
Ræðum það er hlaðvarp Góðra samskipta, sérhæfðs ráðgjafafyrirtækis á sviði almennatengsla, stefnu og stjórnendaleitar. Við ræðum við fólk sem okkur finnst áhugavert og er að gera spennandi hluti.
Stef: Ræðum það – Dire & Nolem
#2 Hvernig á að ná árangri í ráðgjöf? -Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir