Í þessum þætti af Ræðum það... er rætt við Steinar Þór Ólafsson, sérfræðing í samskiptum og miðlun hjá Viðskiptaráði. Steinar var áður markaðsstjóri Skeljungs en hann hefur verið áberandi í umræðunni um markaðsmál, vinnurými og nú síðast starfsauglýsingar.
Ræðum það er hlaðvarp Góðra samskipta, sérhæfðs ráðgjafafyrirtækis á sviði almennatengsla, stefnu og stjórnendaleitar. Við ræðum við fólk sem okkur finnst áhugavert og er að gera spennandi hluti.
Stef: Ræðum það – Dire & Nolem
#4 Eru ráðningarferlar og starfsauglýsingar komnar á síðasta söludag? - Steinar Þór Ólafsson