RÉTTI ANDINN

RÉTTI ANDINN

Gestur þáttarins er Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. Ægir hefur starfað hjá Advania síðan 2011, síðast sem framkvæmdarstjóri mannauðs- og markaðsmála, en tók svo við forstjórahlutverkinu árið 2015. Áður starfaði Ægir hjá Capacent á Íslandi um árabil, m.a. sem mannauðs- og framkvæmdarstjóri. Það var sérstaklega gaman að hitta Ægi og ræða við hann um ýmsar hliðar stjórnunar og vinnustaðamenningar. Ekki síst núna, þegar stjórnendur um allan heim mega hafa sig alla við til þess að halda starfseminni gangandi, samhliða því að passa vel upp á mannauðinn og tryggja að allir geti unnið við þær aðstæður sem í boði eru og undir þeim skilyrðum sem yfirvöld hafa sett í ljósi alvarlegrar stöðu sem upp er komin.  Ægi hefur verið líst sem "mannlega stjórnandanum", þ.e. að hann láti sig mannauðinn varða og sé með hlýja og góða nærveru. Það er sannarlega góður eiginleiki að hafa á tímum sem þessum.

Ægir Már Þórisson Hlustað

25. mar 2020