Samfélagið

Samfélagið

Við kynnum okkur fuglastríðið í Garðabæ, stríð sem einna helst beinist gegn Sílamáfnum. Fyrir nokkrum árum fóru að berast fréttir af því að mávar héldu vöku fyrir íbúum í Sjálandshverfi og víðar, réðust jafnvel á börn á göngustígum. Bærinn hefur ráðist í aðgerðir vegna þessa og íbúar stofnað sérstakar mávasveitir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eirík Sigurðsson sem er meðlimur í einni slíkri mávasveit og Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur, samskiptastjóra í Garðabæ. Bárujárn hefur þótt góð klæðning á hús hér á landi í langan tíma, síðan kom steining, sem hefur virkað vel, en undanfarin ár hafa álplötur í öllum regnbogans litum tekið völdin. Við eru plötuð með mismunandi klæðningum á stórum byggingum, þannig að þau líta út eins og mörg hús. Við fórum í bæinn og veltum fyrir okkur misjöfnum klæðningum bygginga með Magneu Guðmundsdóttur arkitekt. Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingur flutti pistil í lok þáttar. Umsjón: Fanney Birna Jónsdóttir og Lísa Pálsdóttir.

NoneHlustað

13. jún 2024