Samfélagið

Samfélagið

Með kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt. Allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er að mestu orðin göngugata og eigendur veitingastaða hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan verið undanfarið að reka gesti inn, vegna þess að margir staðanna hafa ekki tilskyld leyfi. Við ræðum við Aðalgeir Ásvaldsson samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Samfélagið heldur áfram að fjalla um máva í Garðarbænum. Arnór Sigfússon, fuglafræðingur, spjallar við Arnhildi Hálfdánardóttur um sílamávinn, samlíf manna og máva og hvernig mávurinn var hrakinn frá Keflavíkurflugvelli. Við ætlum líka að kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærum fjármálum, ræðir við samfélagið. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Fanney Birna Jónsdóttir Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-05 BEATLES - Day Tripper. Guitar Islancio - Fuglinn í fjörunni. Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur.

Útivera í leyfisleysi, sjálfbær fjármál og samlíf manna og mávaHlustað

14. jún 2024