Samfélagið

Samfélagið

Í dag ætlum við að fjalla um náttúruvá og skipulagsmál en skipulagsgerð er mikilvægur vettvangur til þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja náttúruvá hvort sem er af völdum loftslagsbreytinga, eldsumbrota eða annarra þátta í náttúru- og veðurfari. Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvárþjónustu Veðurstofu Íslands, segir okkur frá vinnu við gerð áhættumats við skipulagsgerð í ljósi nýlegrar reynslu af eldsumbrotum og til framtíðar. Og við tölum um orkuskipti í þungaflutningum. Nýlega var undirrituð viljayfirlýsing um kaup fimm íslenskra fyrirtækja á nýjustu tegund vetnisknúinna vörubíla frá þýska vörubílaframleiðandanum MAN. Það er fyrirtækið Íslensk nýorka sem hefur haft forgöngu um þetta verkefni og við ætlum að tala við framkvæmdastjórann Jón Björn Skúlason á eftir. Svo heyrum við umhverfispistil í lok þáttar frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi.

Skipulag og náttúruvá, orkuskipti í flutningum og umhverfispistillHlustað

02. maí 2024