Samfélagið

Samfélagið

Hvernig hafa íslenskir blaðamenn brugðist við miklum og örum breytingum í fjölmiðlaumhverfinu, og hvernig hafa hugmyndir þeirra um hlutverk sitt þróast í takt við þær? Eru blaðamenn í sjálfsmyndarkrísu? Í dag fáum við Jón Gunnar Ólafsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, í heimsókn til að ræða þessar áleitnu spurningar. Mosi, hann er mjúkur og til af honum 600 tegundir á Íslandi. Í síðustu viku ræddum við um sjaldgæfar mosategundir í Hólavallagarði í Reykjavík - og í dag beinum sjónum okkar að landgræðslu og mosakroti. Magnea Magnúsdóttir umhverfis- og landgræðslustjóri Orku náttúrunnar fræðir okkur um landgræðslustarf fyrirtækisins á Hellisheiði og víðar. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, rifjar upp umfjöllun Ríkisútvarpsins um stórbruna á Raufarhöfn, þegar Búðin, eitt elsta timburhús landsins, brann til kaldra kola árið 1956. Tónlist í þætti: JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi. EIVÖR PÁLSDÓTTIR - Mussisjuk.

Sjálfsmyndarkrísa blaðamanna, mosakrot og landgræðsla, stórbruni á RaufarhöfnHlustað

09. sep 2024