Samfélagið

Samfélagið

Við ætlum að heyra hvað nákvæmlega felst í aðgerðum sem ráðist verður í til að sporna gegn ofbeldi meðal barna. Í lok júní kom út aðgerðaáætlun á vegum ríkislögreglustjóra til að reyna draga úr ofbeldi meðal barna sem hefur aukist um helming á fimm árum og er mikið áhyggjuefni. Hefur enn ein nefndin verið stofnuð og enn ein skýrslan verið gefin út? Eru þetta orðin tóm hjá stjórnvöldum eða verður raunverulega gripið til afgerandi úrræða til að snúa þessari uggvænlegu þróun við? Eygló Harðardóttir Verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra sem einnig situr í nýskipuðum aðgerðarhóp kemur til okkar og ræðir þetta. Ættum við að hætta að nota orðið „umhverfisvænt“? Er almennt hægt að segja að eitthvað sé umhverfisvænt eða ekki? Hvernig metum við valkostina sem blasa við okkur í umhverfis- og orkumálum? Þessu veltir Stefán Gíslason fyrir sér í umhverfispistli Samfélagsins í dag. Í lok þáttar ræðum við túrista, fasista og útrásarvíkinga. Þá flytjum við seinni hluta viðtals okkar við Guðrúnu Dröfn Whitehead um hugmyndir okkar um víkinga og birtingarmyndir þeirra í samtímanum.

Útrásarvíkingar, ofbeldi meðal ungmenna og hugtakið „umhverfisvænt“Hlustað

05. sep 2024