Samfélagið

Samfélagið

Hvernig tökum við á vanlíðan barna og ungmenna og hvað er raunverulega að hrjá börn sem sýna ofbeldishegðun? Eru það fjölskylduáföll, heimilisofbeldi, vanræksla og óregla á heimilum eða hreinlega áhrif samfélagslegra áfalla á borð við heimsfaraldur og efnahagshrunið? Í Skotlandi tókst yfirvöldum að draga úr vopnaburði meðal ungmenna með því að huga að geðheilbrigði þeirra í samvinnu við lögreglu. Við ætlum að ræða við Sigrúnu Sigurðardóttur prófessor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri en hún er einnig stjórnarmaður í Berginu og Geðhjálp og fyrrverandi lögreglukona. Þar næst fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um samband umhverfis- og heilbrigðismála. Að lokum kíkjum við í heimsókn í Þjóðminjasafnið með safnafræðingnum Guðrúnu Dröfn Whitehead, sem var að gefa út bók um víkinga og birtingarmynd þeirra í samtímanum. Við ræðum meðal annars hvað það þýðir að vera víkingur í dag, árið 2024. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-04 K.ÓLA - Dansa meira. Bon Iver - For Emma. Ted Gardestad - Viking.

Vanlíðan barna, víkingar og umhverfismálHlustað

04. sep 2024