Samfélagið

Samfélagið

Í dag kíkjum við á sýningu á handverki og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Við þræðum sýninguna í fylgd Gunnhildar Eddu Guðmudsdóttur, framkvæmdarstjóra Handverks og hönnunar og spjalla aðeins við handverksfólkið og hönnuðina sem eru á sýningunni. Við heimsækjum síðan Þjóðskjalasafn Íslands, eins og alltaf annan hvern mánudag. Þar tekur Unnar Ingvarsson á móti okkur og sýnir okkur skjöl frá fyrri hluta tuttugustu aldar, sem tengjast starfsemi RÚV. Meðal annars kynnum við okkur gögn um lýðræðislegar og hápólitískar kosningar í útvarpsráð og fréttir sem tengjast hernámi Íslands. Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdarstjóri Neytendasamtakanna, kemur síðan til okkar og ræðir sýndarverslanir, eða dropshipping, sem hefur leikið marga grátt. Tónlist úr þættinum. O.N.E. - I See You. O.N.E. - Awa 1. O.N.E. - Ksiezyc.

Sýndarverslanir, handverk, hernám og hápólitískar kosningar í útvarpsráðHlustað

11. nóv 2024