Samfélagið

Samfélagið

Það brá mörgum í brún í gær þegar fréttir voru sagðar af rannsóknum á fiskiolíum á borð við lýsi og omega 3 fitusýrum þar sem sterkar vísbendingar virðast koma fram um að fiskiolía eða lýsi geti beinlínis verið óhollt. Þvert á það sem okkur hefur verið kennt um - kannski ekki aldir - en býsna lengi. Samkvæmt þessum rannsóknum eykur neysla á bætiefnum á borð við lýsi sem innihalda omega 3, líkurnar á gáttatifi og heilablóðföllum hjá vissum hópi fólks. Við ræðum þetta við Þórhall Inga Halldórsson, prófessor í matvæla- og næringarfræði við HÍ. Á morgun stendur Kvenréttindafélag Íslands fyrir Kynjaþingi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Þetta er lýðræðislegur og feminískur vettvangur sem félagið skapar fyrir almenning, félagasamtök og hópa sem vinna að jafnréttismálum í víðum skilningi - og það er í mörg horn að líta. Við ræðum áherslur í jafnréttisbaráttunni og dagskrá þingsins við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands. Við heyrum eina málfarsmínútu og svo kemur Vera Illugadóttir til okkar í dýraspjall - um albatrosaömmuna Visku. Tónlist: FLEETWOOD MAC - Dreams. ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG ÞORSTEINN EINARSSON - Hluthafi í heiminum.

Er lýsi gagnlegt? Kynjaþing 2024, málfar og dýraspjall - langlífur albatrosiHlustað

24. maí 2024