Samfélagið

Samfélagið

Ársskýrsla Unicef kom út fyrir skömmu og við ætlum að ræða við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra samtakanna. Það hefur enginn farið varhluta af stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem margir þjást og börn mest af öllum. Varnarlaus börn eru fórnarlömb í stríði og þurfa að reiða sig á hjálp sem því miður hefur ekki getað borist nema af skornum skammti. Þúsundir barna hafa verið drepin og særst í átökum og vinnur Unicef hörðum höndum að því að hjálpa börnum og hefur ítrekað krafist vopnahlés. Einnig þurfum við að huga að réttindum barna á Íslandi. Við fjöllum líka um mál sem hefur skekið hafnarfjörð síðastliðnar vikur, maður eða menn hafa ítrekað veist að börnum í bænum og foreldrar og börn uggandi, reiði og múgæsingur á samfélagsmiðlum virðist hafa náð nýjum hæðum eftir að mynd var birt af meintum árásarmanni - fólk steig fram undir nafni og hótaði manninum ofbeldi og jafnvel lífláti. Við ræðum þetta við Margréti Valdimarsdóttur dósent í félags- og afbrotafræði. Við heimsækjum svo þjóðskjalasafnið í lok þáttar - heyrum þar af kjörum vinnuhjúa á nítjándu öld. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Tónlist: POLLAPÖNK - Enga fordóma (Söngvakeppnin 2014).

Ársskýrsla Unicef, múgæsingur og ótti í Hafnarfirði, heimsókn á Þjóðskjalasafn ÍslandsHlustað

03. jún 2024