Samfélagið

Samfélagið

Er mikið varið í barnabækur í dag? Er úrvalið nógu gott? Þarf að uppfæra bókakostinn og þær hugmyndir sem haldið er að börnum í takt við nýja tíma? Er réttlætanlegt að aðlaga barnabækur eða ritskoða þær? Við förum á dýptina í pallborðsumræðum. Þátttakendur: Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, bókarýnir, foreldri og sérstök áhugamanneskja um múmínbækur. Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri BF-útgáfu, undir það heyra nokkur félög, meðal annars Almenna bókafélagið og barnabókaútgáfan Unga Ástin mín sem gefur út harðspjaldabækur fyrir yngstu börnin. BF-útgáfa gefur meðal annars út bækur byggðar á sjónvarpsþáttunum um Blæju og Hvolpasveit og svo hinn klassíska bókaflokk skemmtilegu smábarnabækurnar sem hafa notið vinsælda í áratugi - og þykja sumar umdeildar. Una Margrét Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður hér á Rás 1, hún varð læs þriggja ára og las alls konar klassískar bækur ung óritskoðaðar, hún hefur mikið velt fyrir sér barnamenningu og barnaefni í gegnum tíðina- og gefið út bækur um barnasöngva og leiki. Embla Rún Halldórsdóttir, stjórnmálafræðinemi, mikill áhugamaður um bóklestur, bókaáhrifavaldur hjá Forlaginu og fulltrúi yngri kynslóðarinnar í þessu pallborði. Vísindaspjall - Edda Olgudóttir, vísindamiðlari samfélagsins, segir okkur frá Nóbelsverðlaununum í efnafræði. Tónlist: THE KINKS - Picture book. TALKING HEADS - The Book I Read.

Ritskoðun barnabóka - pallborðsumræður. Vísíndaspjall með Eddu.Hlustað

16. okt 2024