Rauða borðið, 15. apríl
Forsetaframboð, Þingið, undrabarn og færeysk tónlist
Þátturinn hefst með ítarlegu viðtali við Höllu Hrund Logadóttur forsetaframbjóðanda. Liðurinn ÞINGIÐ verður á sínum stað eins og alltaf á mánudögum. Andrés Ingi, Þorbjörg Sigríður og Hafdís Hrönn þingmenn ræða átakamál. Þá kemur Eva H. Önnudóttir stjórnmálafræðingur og ræðir stöðu stjórnarinnar. Færeyskar bókmenntir verða til umfjöllunar, ný bók frá vinum okkar í suðri. Og við ræðum við Daða Logason, undrabarn í stærðfræði – nema í grunnskóla sem er ekki bara langbestur í raungreinum hér á landi heldur einnig Íslandsmeistari í bardagaíþróttum.
Rauða borðið 15. apríl - Forsetaframboð, Þingið, undrabarn og færeysk tónlist