Samstöðin

Samstöðin

Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna. Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson ætla að ræða við Guðmund um húsnæðiskerfið á Íslandi í dag, um þörfina á öflugum leigjendasamtökum, um brotin loforð stjórnmálastéttarinnar og ríkjandi hagsmuni braskara á markaðnum og stjórnkerfinu í dag. Hvernig berjumst við gegn einokun og ofríki fjármálaaflanna í húsnæðiskerfinu? Þetta og fleira í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18 í kvöld! Skráið ykkur í Leigjendasamtökin á vefsíðu samtakanna leigjendasamtokin.is

Rauður raunveruleiki - Leigjendasamtökin, húsnæðiskerfi braskara og baráttan fyrir réttlætiHlustað

10. apr 2024