Samstöðin

Samstöðin

Nýverið kom út bók eftir félagsfræðinginn og heimspekinginn Þorvald Logason sem ber nafnið Eimreiðarelítan - Spillingarsaga. Í þeirri bók er rakin saga þess hvernig fámennum hóp á Íslandi tókst að grípa óheyrileg völd og beita þeim til þess að hagnast sér og sínum, á kostnað almennings. Í þættinum í kvöld spjöllum við við Þorvald um sögu Eimreiðarinnar, spillingu, auðvaldsklíkur, um nýfrjálshyggju í heiminum og hvernig Eimreiðin naut hugmyndafræðilegs stuðnings af henni. Við munum einnig ræða um hvað sé til ráðs til að taka á slíkri spillingu, hvernig hægt er að fyrirbyggja hana og auðræði almennt. Kynnist spillingarsögu undanfarinna áratuga á Íslandi, fáum samhengið um hvernig við komumst hingað þar sem við erum stödd, í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18:00

Rauður raunveruleiki - Eimreiðarelítan: Auðvaldsklíkur og Spilling / Þorvaldur LogasonHlustað

15. apr 2024