Frelsið er yndislegt - #7 Karlar og fangelsi
Menn sem setið hafa í fangelsi ræða fangavistina. Í þessum þætti koma saman nokkrir menn sem allir hafa setið í fangelsi, og ræða fangavistina frá upphafi til enda. Upphaf afplánunar, þrepaskipting afplánunar, svört menning í fangelsum, meðferðarstarf, nýtt öryggisfangelsi, áhyggjur af ungu fólki á fangelsum, hvaða vímugjafar eru mest notaðir og hvað tekur við eftir afplánun. Viðmælendur þáttarins eru: Ingólfur Snær, Ásgeir Þór og Andri Ástráðs. Stjórnendur þáttarins eru: Guðmundur Ingi Þóroddsson og Ásdís Birna Magnúsdóttir