Snæbjörn talar við fólk

Snæbjörn talar við fólk

S01E63  – Í dag er þátturinn með óreglulegu sniði. Þar sem Snæbjörn er í sumarfríi ákvað hann að gera sér lífið auðvelt og taka stutt viðtal við konu sína, hana Agnesi Grímsdóttur. Hún Agnes er Húsvíkingur, snyrtifræðingur á Madison Ilmhúsi, söngkona og áhugamaður um lífið; kona sem að eigin sögn þrífst ekki vel í logni. Agnes er eiginkona Snæbjörns og eiga þau saman tvö börn. Þau hjónin fá oft spurninguna, hvort í sínu lagi, um það hvernig það sé að vera gift Snæbirni, og í  þessum þætti reyna þau að svara þeirri spurningu, Agnes í hreinskilni og Snæbjörn í örlitlu stressi. Gott spjall.      – Síminn Pay býður upp á STVF. Jæja, fyrst þetta fór svona er þá ekki bara upplagt að halda sig til hlés og panta matinn heim? Prófaðu nýjan veitingastað í Síminn Pay appinu.    – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku í sumar. Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Besta platan á föstudögum.

#0063 Agnes GrímsdóttirHlustað

29. júl 2021