Snæbjörn talar við fólk

Snæbjörn talar við fólk

S01E67  – Ómar Úlfur Eyþórsson ætlaði sér alltaf að verða rokkstjarna en endaði sem fjölmiðlamaður, lengstan tíma hjá X-977 þar sem hann stjórnar Morgunþættinum í dag. Hann er líka lærður smiður, óvirkur fíkill, með He-Man húðflúr og hefur náð að eyða 15 þúsund krónum í sælgætissjálfssala á tveimur vikum. Geri aðrir betur. Þó hann vinni við að tala við fólk segist hann ekki kunna að kurteisisspjalla og að hann þurfi alltaf annað slagið að hrista upp í lífinu. Í einum slíkum hristingi breytti hann til að mynda nafninu sínu og tók millinafnið Úlfur, án þess að ráðfæra sig við nokkurn í kringum sig. Líf Ómars hefur ekki alltaf verið auðvelt, en í dag telur hann sig mjög heppinn, sérstaklega með fólkið í kringum sig og lifir lífinu án þess að vera með nokkurt plan. Gott spjall.      – Pizzan býður upp á STVF. Þú færð enn 40% afslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli með kóðanum 'HLJODKIRKJAN'. Ný á matseðlinum er Eftirlætið hennar ömmu með aspasi og paprikukryddi. Namminamminamm.    – Síminn Pay býður upp á STVF. Vantar þig nýjan fararskjóta? Þú færð UNAGI rafskútu á 21% afslætti í Léttkaupum í Síminn Pay appinu.    – Hljóðkirkjan býður brátt aftur upp á 4 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Besta platan á föstudögum.

#0067 Ómar Úlfur EyþórssonHlustað

26. ágú 2021