Söguskoðun

Söguskoðun

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um J. Robert Oppenheimer og fæðingu kjarnorskusprengjunnar Ólafur las bókina American Prometheus: The Triumph and Tragedy of J. Robert Oppenheimer eftir Kai Bird and Martin J. Sherwin en eftir henni var gerð kvikmynd um vísindamanninn með sínar ýmsu hliðar sem fékk mikla athygli á síðasta ári.Kjarnorkusprengjan var afrakstur rannsókna vísindamanna frá mörgum löndum og í stríðinu voru öll helstu stórveldin með einhverskonar kjarnorkuverkefni í gangi. Það voru Bandaríkjamenn sem kláruðu verkefnið og  urðu til þess að beita þessu gereyðingarvopni í fyrsta og eina sinn árið 1945,  og má segja að Sprengjan hafi haldið heiminum í heljargreipum allar götur síðan fram á þennan dag.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

87 - Oppenheimer og kjarnorkusprengjanHlustað

10. maí 2024