Söguskoðun

Söguskoðun

Í þessum síðasta þætti hlaðvarpsins á þessari önn ræða Ólafur og Andri um innrás Sovétríkjanna í Finnland í nóvember 1939, og hið þriggja mánaða langa vetrarstríð sem eftir fylgdi.  Fjölmargir illa búnir Rússar urðu hinum "hvíta dauða" að bráð þennan frostavetur, og hin eftirtektarverða vörn Finna vakti aðdáun um heim allan. Vetrarstríðið hafði þær afleiðingar að Noregur og Danmörk drógust inn í hildarleikinn mikla, síðari heimsstyrjöld, þótt ekkert Norðurlandanna hafi þorað að hjálpa Finnum með beinni hernaðaríhlutun. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

53 - VetrarstríðiðHlustað

12. júl 2022