Söguskoðun

Söguskoðun

Þessi þáttur er einnig aðgengilegur með hljóði og mynd  á YouTube.Hlaðvarpið Söguskoðun snýr snögglega aftur úr sumarfríi með sérstakan sumar-special í tilefni þess að báðir meðlimir hlaðvarpsins eru staddir á sama stað - í óklipptri upptöku frá Borgarbókasafni. Í þessum fyrsta  þætti hlaðvarpsins bæði í hljóði og mynd ræða Ólafur og Andri um Þrjátíu ára stríðið sem skók Þýskaland árin 1618-1648, orsök þess og afleiðingar. Stríðið og eftirmáli þess markaði djúp spor í sögu Þýskalands og Evrópu. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

40 - Þrjátíu ára stríðiðHlustað

05. ágú 2021