Söguskoðun

Söguskoðun

Í júlí árið 1974 gerðu Tyrkir innrás í Kýpur og hefur hernám þeirra á norðurhluta eyjarinnar staðið yfir í 47 ár. Innrásin er mjög umdeild og hefur verið harðlega gagnrýnd af alþjóðasamfélaginu. Tyrkir segjast hafa verið að vernda tyrnkeska minnilutan á eyjunni, sem hafði verið ofsóttur af Grikkjum, en kýpríska þjóðvarðliðið, stutt af herforingjastjórn Grikkja, hafði skömmu áður framið valdarán með það fyrir marki að sameina eyjuna Grikklandi.Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Grikklands, Tyrklands og Kýpur á 20. öld og skoða aðdraganda innrásar Tyrkja á Kýpur. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

52 - Innrásin á Kýpur 1974Hlustað

29. jún 2022