Söguskoðun

Söguskoðun

Hernaður er mikið í deiglunni þessa dagana svo við höldum okkur á þeim nótunum að sinni. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hernað og herkænsku Austrómverska ríkisins en þetta gríska áframhald Rómarveldis átti í stöðugum ófriði við nágrannaþjóðir sína á öllum hliðum, nær stanslaust frá 6. öld og fram á 15. öld. Rómverjar höfðu mikla aðlögunarhæfni, bjuggu vel af digrum sjóðum gulls og óhætt að segja að herkænska þeirra hafi verið frábrugðin því sem við þekkjum úr Vestur Evrópu.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

47 - Strategikon og herkænska AustrómverjaHlustað

18. mar 2022