Söguskoðun

Söguskoðun

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um síðustu ár Austurríkis-Ungverjalands og þáttöku þess í fyrri heimsstyrjöld. Austurríki-Ungverjaland var eitt þeirra gömlu keisaradæma sem féll eftir stríðið mikla 1914-1918, og tvístraðist í hin ýmsu þjóðríki. Fyrri heimsstyrjöld hófst þegar Austurríki-Ungverjaland lýsti yfir stríði gegn Serbíu eftir morðið á austurríska ríkiserfingjanum Franz Ferdinand í Sarajevo í júní 1914. Austurríki leið gríðarlega ósigra á vígstöðvunum í Galisíu gegn Rússum veturinn 1914-1915 og urðu þeir til þess að austurrísk-ungverski herinn var hreinlega þurrkaður út. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

88 - Austurríki-Ungverjaland í fyrri heimsstyrjöldHlustað

31. maí 2024