Söguskoðun

Söguskoðun

Heródótos frá Kalikarnassos er kallaður faðir sagnfræðinnar (og faðir lyganna). Í þættinum í dag hverfum við aftur til fornaldar og skoðum það sem kallað hefur verið fyrsta eiginlega sagnfræðiverkið í vestrænni sagnaritunarhefð, en það er saga Heródótosar af Persastríðinum milli Grikkja og Persa árin 499 til 449 f. kr.Persaveldi var mesta heimsveldi sem sést hafði á þessum tíma, en Grikkland var samansafn sjálfstæðra og ólíkra borgríkja. Persar gerðu tvær innrásir í Grikkland, en tókst ekki að leggja undir sig landið. Heródótos segir frá þessari miklu baráttu austurs og vesturs, eins og hann kaus að líta á það, þar sem Davíð sigraði Golíat. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

66 - Heródótos og PersastríðinHlustað

27. apr 2023