Söguskoðun

Söguskoðun

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri sögu Rússlands á miðöldum og frameftir til þess að skoða hvaðan þetta mikla veldi kemur, en hegðun Rússa sem stórveldi hefur verið mikið í umræðunni síðustu misseri.Stórfurstadæmið Moskva reis undan valdi Mongóla og austrómversku kirkjunnar á 15. öld og þandist hratt út. Rússland varð þegar fram liðu stundir að einu stærsta ríki veraldar. Samhliða þessu varð til keisaraleg hugmyndafræði byggð m.a. á hugmyndinni um þriðju Róm.  Sumir litu svo á að Moskva væri arftaki Konstantínópel sem verndari austurkirkjunnar. Þannig komust Rússakeisarar í hóp þeirra sem gerðu tilkall til þess að vera arftakar Rómarkeisara.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

48 - Þriðja RómHlustað

12. maí 2022