Söguskoðun

Söguskoðun

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur miðaldakonungsríkið Kongó í Mið-Afríku sem stofnað var undir lok 14. aldar og leið ekki formlega undir lok fyrr en á 20. öld. Fá miðstýrð ríki voru til staðar í Afríku sunnan Sahara fyrir nýlenduvæðinguna, en konungsríkið Kongó varð til við samruna ættbálka og samþjöppun valds í kringum höfuðstaðinn Mbanza-Kongo sem nú er í norðanverðri Angóla. Kongó varð fljótt upp úr 15. öld að miðstöð portúgölsku þrælaverslunarinnar og rann hægt og rólega inn í portúgalska heimsveldið.  Konungur Kongó varð lénsmaður portúgalska konungsins  í Angóla og árið 1885 var Kongósvæðinu formlega útdeilt á milli Belga, Frakka og Portúgala.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

69 - Konungsríkið KongóHlustað

30. maí 2023