Söguskoðun

Söguskoðun

Á jóladag 1066 var Vilhjálmur bastarður hertogi af Normandí, krýndur konungur Englands. Rúðujarlinn hafði þá leitt innrás franskra og normanskra riddara til Englands, sem yfirbuguðu húskarla síðasta engilsaxneska konungsins, Haralds Guðnasonar í hinni víðfrægu orrustu við Hastings. Englendingar hafa síðustu aldir þakkað Ermasundinu sérstöðu sinni sem eyju,  varin árásum frá meginlandinu, en innrás Normanna var í síðasta sinn sem slík innrás heppnaðist. Hún hafði víðtæk áhrif á sögu Englands, enda ætti hvert mannsbarn í hinum enskumælandi heimi að þekkja ártalið 1066.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

59 - Bastarðurinn 1066Hlustað

11. jan 2023