Söguskoðun

Söguskoðun

Þátturinn byrjar á 18 mínútu.Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur aðdraganda Krímstríðsins 1853-1856 og hið pólitíska landslag Vínarfundarins í Evrópu sem komið var á laggirnar 1815 þegar Napóleon var yfirbugaður. Styrjöldin var háð á milli Rússneska keisaradæmisins og bandalags Frakka, Breta, Sardiníumanna og Tyrkja, en hún batt enda á áratuga langt friðartímabil í Evrópu sem kennt hefur verið við evrópska konsertinn, eða "evrópsku hljómkviðuna". Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

77 - Evrópski konsertinn og aðdragandi KrímstríðsinsHlustað

29. des 2023