Söguskoðun

Söguskoðun

 Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum.  Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni heilögu. Í síðari hluta þessarar yfirferðar ræðum við atburði fyrstu krossferðarinnar eftir fall Antíokkíu þegar Austrómverjar yfirgefa krossfarana og þeir stofna sjálfstæð krossfararíki við botn Miðjarðarhafs.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

61 - Deus vult! Fyrsta krossferðin II. hlutiHlustað

30. jan 2023