Söguskoðun

Söguskoðun

Franska byltingin hófst árið 1789 og er hún jafnan talin á meðal merkustu atburða mannkynssögunnar. Byltingin varð til í umróti nýrra hugmynda í landi sem bar einkenni mikils félagslegs óréttlætis. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur þetta samfélag sem stundum er kallað Ancien Régime - gamla stjórnin, með áherslu á  síðasta franska Búrbónakonunginn, Loðvík XVI, en hann var tekinn af lífi af byltingarmönnum árið 1793. Heitar umræður spunnust um endurskoðun sögunnar, um lögstéttarkerfið, skattkerfið og minningu konungsins og drottningarinnar Marie Antoinette. Var Ancien Régime eins gegnumsýrt af spillingu og óstjórn eins og byltingarmenn höfðu uppi, eða var byltingin óumflýjanleg afleiðing óskilvirks og óréttláts samfélags?Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

65 - Ancien Régime: Frakkland á barmi byltingarHlustað

07. apr 2023