Söguskoðun

Söguskoðun

Arngrímur Jónsson lærði er gamalkunnur góðvinur þáttarins. Arngrímur var höfundur fyrsta Íslandssöguritsins, Crymogæa, sem kom út á latínu árið 1609.Sem ungur og upprennandi fræðimaður árið 1592 var Arngrímur í Kaupmannahöfn þar sem hann hafði kynnst sagnfræðingum sem höfðu mikinn áhuga á íslenskum fornsögum. Hann hafði með í fórum handrit að bók sem var svo gefin út árið eftir, einnig á latínu. Þetta var Brevis commentarius de Islandia, eða Stutt greinargerð um Ísland. Brevis var fræðilegt deilurit, samin sem andsvar við "fáránlegum bábiljum og illkvitnislegum og ærumeiðandi skröksögum, sem í þann tíð moraði af í útlendum landafræðiritum og öðrum ritum sem fjölluðu um Ísland", eins og segir í umsögn um verkið frá miðri 20. öld. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

57 - Stutt greinargerð um Ísland 1593Hlustað

17. nóv 2022