Söguskoðun

Söguskoðun

Heilaga rómverska ríki hinnar þýsku þjóðar hefur oft borið á góma hér í hlaðvarpinu, enda spannar saga þess 1000 ár í hjarta Evrópu. Saga þessa ríkis hófst með krýningu Karlamagnúsar sem nýs Rómarkeisara í vestrinu árið 800, og það leið undir lok þegar nýr keisari frönsku byltingarinnar réðist inn í Þýskaland 1806 og nýr keisari Austurríkis lagði frá sér krúnu Karlamagnúsar í hinsta sinn. Ólafur og Andri ræða heilaga rómverska ríkið sem sögulegt fyrirbæri, hvernig litið hefur verið á það í sagnfræðinni, og hvaða þýðingu það hefur fyrir Evrópu í dag. Var það heilagt? Var það rómverskt? Var það ríki? Var það þýskt? Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

63 - Hvað var þetta svokallaða Heilaga rómverska ríki?Hlustað

22. feb 2023