Söguskoðun

Söguskoðun

Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum.  Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni heilögu. Í þessum fyrri hluta ræðum við aðdraganda krossferðarinnar og gang hennar þar til leiðir skiljast við Alexíus við Antíokkíu 1098.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

60 - Deus vult! Fyrsta krossferðin I. hlutiHlustað

28. jan 2023