Söguskoðun

Söguskoðun

Í þessum 50-51. þætti hlaðvarpsins í tveimur hlutum ræða Ólafur og Andri ævi og störf mögulega eins frægasta manns sögunnar. Julius Caesar hefur verið sagður einn merkasti stjórnmálaskörungur og herstjórnandi vestursins. Hann var upphafsmaður rómverska keisaradæmisins og eftir hann liggja djúp spor í söguvitund okkar heimshluta.Í seinni hlutanum ræða Ólafur og Andri feril Caesars frá því hann gerðist landstjóri í Gallíu árið 58 f.kr., Gallastríðin, borgarstyrjöldina í Róm, leiðangurinn til Egyptalands og tíma hans sem diktator til lífstíðar, en sú lífstíð endaði snöggt þegar Caesar var myrtur árið 44. f.kr.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

51 - Julius Caesar II. hlutiHlustað

16. jún 2022