Söguskoðun

Söguskoðun

Söguskoðun snýr aftur ef dágott jólafrí á nýju ári 2021! Í dag spjalla Ólafur og Andri m.a. um tímabilaskiptingu sögunnar og þann atburð sem talinn er marka upphaf evrópskra miðalda og var vafalaust einn mest mótandi atburður í sögu álfunnar: Fall Rómarveldis. Róm var ekki byggð á einum degi, og ekki féll Rómarveldi daginn sem síðasta keisaranum var steypt af stóli árið 476. Hvenær féll Rómarveldi? Hverjar eru orsakir falls þessa heimsveldis, og með því hins rómverska heims, sem síðari tíma Evrópubúar áttu eftir að móta sögu sína út frá?Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

31 - Fall Rómarveldis og upphaf miðaldaHlustað

11. jan 2021