Söguskoðun

Söguskoðun

Í desember síðastliðnum kom út ný bók um landnám Íslands: Eyjan hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson. Í bók Ásgeirs eru meðal annars settar fram kenningar um veiðimennsku og útflutning rostungsafurða á Landnámsöld, en þær hugmyndir eru frekar nýlegar í rannsóknum á landnáminu. Um þetta hefur Bergsveinn Birgisson skrifað í bók sinni Leitin að svarta víkingnum sem kom út á íslensku árið 2016, en Bergsveinn hefur nú sakað Ásgeir um ritstuld, nánar tiltekið hugmyndastuld, og skotið málinu fyrir siðanefnd Háskóla Íslands. Landnámið er geysivinsælt málefni innan íslenskrar sögu og hefur málið vakið mikla athygli í fjölmiðlum nú yfir jólin og áramótin. Í þessum fyrsta þætti ársins ræða Ólafur og Andri um Leitina að svarta víkingnum, Eyjuna hans Ingólfs og deiluna sem nú er í gangi um höfundarrétt hugmyndarinnar um "veiðimenningar-efnahag ", eins og Bergsveinn kallar hana, eða " veiðiþræla-viðskiptalíkan", sem Ásgeir kallar hana. Cover mynd þáttarins er fengin af forsíðu Eyjunnar hans Ingólfs.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

45 - Leitin að eyjunni hans IngólfsHlustað

10. jan 2022