Söguskoðun

Söguskoðun

Fyrr á þessu ári ræddum við sögu rússneska keisaradæmisins frá fæðingu þess á miðöldum og fram að þeim tíma er Rússland varð evrópskt stórveldi á 18. og 19. öld. Í þessum þætti ljúkum við þríleiknum með því að ræða fall keisaradæmisins og líf og störf síðasta keisarans. Nikulás II Rússakeisari er stundum talinn síðasti konungborni einvaldurinn í Evrópu, þótt um þetta megi deila. Hann barðist gegn lýðræðisumbótum og bar síðastur valdhafa forna gríska titilinn "autocrat" framyfir byltinguna 1905 og allt til endaloka keisaradæmisins 1917. Nikulás var myrtur ásamt fjölskyldu sinni árið 1918 af byltingarmönnum. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

58 - Síðasti einvaldurinnHlustað

06. des 2022