Söguskoðun

Söguskoðun

Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn galdrafárið í Evrópu og galdramálin á Íslandi á 17. öld. Í Evrópu voru tugir þúsunda meintra norna og galdramanna brennd á báli, eða tekin af lífi með öðrum hætti fyrir það að stunda svartagaldur og hvítagaldur. Langstærstur fjöldi þeirra voru konur. Á Íslandi voru 22 brennd á báli fyrir ástundun galdurs, þar af ein kona. Galdrafárið á Íslandi, ef svo mætti kalla, var helst að finna á Vestfjörðum og stóð hin svokallaða brennuöld yfir á tímabilinu 1625-1690 þegar síðasti brennudómurinn var kveðinn upp. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

73 - Galdrar, brennur og galdrafárHlustað

26. sep 2023