Spegillinn

Spegillinn

Þingflokksformenn Framsóknar og Viðreisnar eru nokkuð bjartsýnar á að þingið afgreiði fjárlagafrumvarpið. Þær segja að ekkert verði hefðbundið við þingstörf næstu daga. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þær Ingibjörgu Isaksen og Hönnu Katrínu Friðrikson. Fjarskiptakerfi á norðan- og austanverðu landinu lágu niðri í um tuttugu mínútur um miðjan dag í gær. Netið fór, það var ekki hægt að hringja og tetrakerfi sem viðbragðsaðilar reiða sig á brást líka. Öll þessi kerfi voru hýst á sama stað hjá Mílu. Þetta er grafalvarlegt, segir ríkislögreglustjóri í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Málefni flóttafólks og hælisleitenda verða í forgrunni á leiðtogafundi Evrópusambandsins í lok vikunnar. Afstaðan til þessara mála hefur harðnað í mörgum ríkjum ESB - ekki síst vegna uppgangs hægri flokka á undanförnum árum. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Þingstörf á óvissutímum, brestur í almannavarnakerfinu og málefni flóttafólks í Evrópu.Hlustað

16. okt 2024