Spegillinn

Spegillinn

Unnið hefur verið að því hörðum höndum að koma á heitu vatni frá Svartsengi til notenda í byggðakjörnum á Suðurnesjum. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðlaug H. Sigurjónsson, sviðsstjóra umhverfissviðs í Reykjanesbæ. Ástandið á Reykjanesskaga er fólki áminning um að vissast er að fara sparlega með heita vatnið, ekki síst þegar frost er á bilinu 10-20 stig. Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku, segir í viðtali við Ágúst Ólafsson að rétt sé að fólk geri sér grein fyrir að heitt vatn sé ekki endalaus auðlind. Samræði fullorðins við barn undir fimmtán ára aldri þarf að skilgreina sem nauðgun í lögum að dómi Salvarar Nordal, umboðsmanns barna. Það eigi ekki að vera mat dómara hvort samþykki hafi legið fyrir. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana.

Heitavatnslögnin frá Svartsengi, heitt vatn er ekki endalaus auðlind, samræði við barn undir 15 ára.Hlustað

09. feb 2024