Spegillinn

Spegillinn

Losun frá íslenska samfélaginu er enn þá á uppleið. Þetta sýna nýjar tölur sem kynntar voru á árlegum loftslagsdegi í Hörpu í dag. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir alvarleg mistök hafa verið gerð þegar felldir voru niður hagrænir hvatar á rafbílum. Ísraelsher hefur nú drepið ríflega 36.000 manns á Gaza í hefndarstríði sínu vegna mannskæðs hryðjuverks vígasveita Hamas í Ísrael 7. október síðastliðinn. Um eða yfir 90 prósent hinna drepnu eru almennir borgarar, meirihlutinn konur og börn. Drápin halda áfram. Allsherjarinnrás í Rafah á Gaza, sem hefur vofað yfir vikum saman, gæti verið hafin. Það er ekki hætta á að íslenska hverfi en frekar að hún hverfi úr ákveðnum kimum ef menn hætta að hugsa á íslensku segir formaður íslenskrar málnefndar.

Losun Íslands á uppleið, 36 þúsund drepnir á Gaza, hætta ef Íslendingar hætta að hugsa á íslenskuHlustað

28. maí 2024